bilað spennt !!!
sko ég er búin að kíkja svo oft á dagatalið undan farna daga því að gestir berast í hús þann 5. apríl .. en svo fór ég að skoða apríl mánuð sem er MJÖG merkilegur því þann 17 apríl kemur NÝTT tungl !!! jahá
ég meina .. hver er ekki orðin þreyttur á þessu gamla myglaða tungli sem varla lýsir ,, í dag var það rétt svo hálft .. það var mikið að þeir ákváðu að drullast til að skipta um ! ég er mjög mjög spennt að sjá nýja tunglið . og ætla nú bara rétt að vona að það verði ekki í sama lit og það gamla.. ég væri sko alveg til í að prófa að hafa það rautt, ekkert smá kózý maður
og engan helv.. kall í tunglinu ,, nú er komin tími á að kona flytji sig í tunglið .. og hvernin væri til dæmis að senda bara Jónínu bjartmarz á tunglið .. ég persónulega held að það sé ekki vitlaus hugmynd og þar getur hún bara verið með sínar hugmyndir algjörlega útaf fyrir sig ! og enginn þarf að heyra þær !
Já ég vona bara að þessir hæstráðandi í nýstungla nefndinni lesi þetta og taka þá ákvörðun að senda beygluna þangað
en já ég vona bara að allir aðris taki vel á móti nýju tungli og ég mun gera, það hlýtur nú öllum að finnast þetta vera jafn slappt og mér ...
jæja snæsan kveður (öll spennt fyrir nýju tungli)
endilega commentið og segið mér hver ykkar viðhorf til nýs tungls eru !!!! 
je je
svo vill ég minna alla vini og ættingja á að ég ætla ekki að koma suður á næstunni en bendi þeim á það eru nú eikker ammælis tilboð í gangi hjá flugfélaginu.. þannig að það kostar um 4000 kellinn að fljúga núna.. kanki komin tími á að þið komið til mín en ekki bara öfugt
kvitta svooooo !!!
blleeee
jæja fólk þá hugsa ég að ég drullist nú til að kasta nokkrum línum hér inn þrátt fyrir gríðalega pikkþreytu eftir að rita inn á barnalandssíðunna en annars er bara fína að frétta hér, nú er maður loksins byrjaður að vinna einhvað er reyndar ekki að vinna neitt mikið en maður verður víst að sjá fyrir barni núna he he en í denn var mér svo sjitt sama hvort ég átti mikið af peningum eða ekki, bara ef það dugði fyrir bjór og sígó
breyttir tímar ha breyttir tímar. en allavena þá erum við komnar austur aftur og það er bara fínt,fyrir utan hvað ég sakna æðislegu flölskyldunnar minnar og ekki má gleyma viðhaldinu mínu í sandgerði. en annars er ég svo sem ekki búin að gera mikið eftir að ég kom heim en ég afrekaði nú að fara í heimsókn á miðvikudaginn til hennar Írisar sem var ammælisbarn þennan dag svo maður varð nú að eyðileggja daginn fyrir henni með því að kíkja á hana
nei nei ég held að henni hafi nú ekki orðið meint af. en svo í dag er hún Hafdís ammælisbarn og mér tókst nú að eyðileggja daginn hennar líka þar sem hún var að vinna á hótelinu og við mæðgur fórum út að borða, ásamt klikkuðu fólki sem verður ekki nefnt hér he he. en allavena þessi færsla mun ekki bara vera blogg heldur einnig ammæliskveðja til bjánana sem áttu ammæli þessa vikuna hér kemur það ........TIL HAMINGJU með AFMÆLIÐ SKVÍSUR ..
mig langar svo einnig að athuga hverjir þekkja þessa línu ? úr hvaða mynd er hún.
þegar tala´ð er um að flýja land segir einn ?
"ég á frænku uppá akranesi" ??
hvað heitir myndinn !
jæja kæru vinir
jæja góðu vinir... já skítur skeður...
þar sem ég er búin að drulla svo yfir Eybbu að vera ekki búin að blogga þá verð ég nú að vera dugleg, já eins og er þá er ég stödd í grindavík s.s helvíti
en reyndar get ég ekki mikið kvartað þar sem ég hef nú bara svosem ekkert fundið fyrir því að vera hér .. þar sem ég er nú nánast í sangerði alla daga hjá viðhaldinu mínu .. en reynda er ég bara búin að vera heima í dag fór til dæmis í göngutúr og kíkti á Ástu og co og svo fór ég í ammæli til hennar Heiðu en svo gerðust undur og stórmerki fyrir rúmum 3 tímum .. þar sem ég fór niðrí björgunarsveitahús (þetta er sennilega lengsta orð sem ég hef skrifað) já alla vena þá bónaði ég bílin minn þar inni og það hef ég bara aldrey gert við bílinn minn áður þannig að ég hugsa að hann Gylfi minn sé sáttur við mig núna
ég er reyndar ekki alveg nógu sátt með þetta því fyrst byrjaði ég að vökva hann og vökva hann .. en ... hann stækkaði ekkert
svo bónaði ég hann og þurkaði en ... enþá ljótur á litinn greyið.. ég fór sem sagt út úr slysó illa svikinn !
En á morgun er munum við mæðgur sinna síðasta (skyldu) erindi okkar hér á þessum landshluta, sem er að fara til augnlæknis og þegar það er afstaðið verður mjög líklega brunað í sangerði og viðhaldið kysst í kleinu í kveðjuskini (í bili)og svo hugsa ég nú að við förum heimleiðis á laug eða sunnudag ! og þegar þangað er svo komið,verður selma að fara í aðlögun til hennar Bjargar (dagmömmu) og ég í aðlögun í beitningarskúrinn´(úff annað langt orð)
jæja vegna mikillar ritstíblu verð ég að hætta í bili
allir að commenta plíis 
Maður er bara á ruglunni !
jæja nú jæja ! hér í latabæ er selma sofandi en ég gjörsamlega glaðvakandi.. já hann sævar var hér að halda mér company ... fengum okkur rósavín og höfðum það gott svona aðeins áður en hann fer á snúrurnar drengurinn..
Ég er virkilega búin að vera að hugsa mikið um framtíðina undanfarið og veit gjörsamlega ekkert hvað mig langar til að gera en er opin fyrir öllu spennandi ... Langar svkakalega að skoða atvinnu á erlendum markaði.. Og væri svo til í að flýja land í nokkur ár .. Ég sé í rauninni ekkert sem stoppar mig ... ég hvort sem er..
1.Á ekki hús.....
2.El dóttir mína upp alveg ein...
3.Er ekki í skóla
4.Á ekki mann
5.Á auðvelt með að læra (svo maður gæti svo sem farið í skóla..
6.Er ekki í farbanni hehe
7.Á Vega bréf
8.Er ekki bundin í vinnu eins og er...
VEIT EKKI MEIR EN ÞAÐ ER HELLINGUR
þannig að núna ætla ég að vera opin fyrir öllu . væri hins vegar líka alveg til í að flytja á akureyri .. fyrst maður er nú að tala um að flýja land he he
Langar bara eiginlega ekki að dvala upp á djúpavogi.. Og enda sem einhver krumpuð kelling og enga ættingja hér til að skeina mig einu sinni
nema náttla selmu mína en ég vill henni allt það besta svo ég mundi nú sleppa henni frá því.
Og er svo ekki spent fyrir grindavík þar sem hann virðist vera orðin undirlagður af dópistum og tælendingjum (ekki það að ég hafi einhvað á móti tælendingum en vá kommon þetta er ísland) eini kosturinn við grindavík er náttla bara fjölskyldan og vinirnir!
og ekki er það reykjavík ! það er nokkuð ljóst
en djúpivogur er góður og gildur en ég á náttla enga fjölskyldu hér til að hlaupa uppá ef ég þyrftir ! en selma á náttla fjölskyldu hér, en hún hittir pabba sin til dæmis nánast bara á fimtudögum í klukkutíma og svo einstaka sinnum ef ég BIÐ hann að koma ... þannig að ekki langar mig að sóa lífi mínu hér og vera óhamingjusöm bara svo að hún geti hitt pabba sinn 1-2 klukkutíma í viku .. ![]()
þannig að nú sem betur fer er internetið komið og maður getur fundið allan anskotan á því .. þannig að ég ætla nú að skoða möguleikana og aldrey að vita nema að þið kæru vinir komið í frí til danmerkur eða eikkað og fáið fría gistingu í kotinu okkar ! það er allt til í dæminu !! ![]()
ég kveð í bili
snæsan í djúpum hugleiðingum !
SKYR ! djöfulsins viðbjóður erettta !!!
en nei það gengur víst ekki.. en nú er ég bara að bíða eftir pössunarpíuni og þá fer ég í ræktina !
og mig hlakkar svoo til að það er ekki fyndið.. og svo þegar það er búið tekur ljósabekkurinn við og svo árið 2008 er það bara fitness ! ha ha ertu ekki til í það eybba mín !
first að ég gat borðað skyr þá getum við þetta
ekki málið !
en allavena þá er bara allt fínasta að frétta héðan og bara allir hressir .. selma stundum of hress he he nei nei en það eru orðnir miklir skríkjir og görg hjá henni þegar hún er að leika sér . þannig að stundum er bara ekki séns í helvíti að horfa á sjónvarpið .. en það er bara stuð
láttu heyra í þér.... og Eybba taktu eftir skoðanakönnununi ! og þá ekki síst niðurstöðunum og ég sver það uppá allt mitt að ég hef aldrey kosið !! þannig að þú þarft að fara að sétja í 5 gírin dama !
nú jæja !
já það var sko vaknað snemma á þessu heimili í morgun ! Vigdís dóttir Ágústu og Guðlaugs fékk að lúra hérna megin í nótt svo þaug hjúin kæmust á ball og það var bara gaman ! en svo alltí einu tóku þær selma og vigdís uppá því að vakna kl 6 takk fyrir í morgun
þær sem eru báðar vanar að sofa til svona 11 en neibb ekki í morgun, en það var svo mikið stuð á þeim að þetta var nú bara gaman
En já það var hið árlega þorrablót hér í bæ í gær en ég ákvað nú að segja pass þetta árið, því bæði þá reddaði ég ekki pössun og svo er þetta bara líka drullu dýrt, því við erum náttla að fara suður eftir 2 vikur og ég geri svona passlega ráð fyrir því að sú ferð eigi eftir að kosta mig skildingin
(ekki eins og það sé nú of mikið af þeim )
Já við Ætlum að Vona að hún Kristín ósk þyggi okkar boð og sjái sér fært um að koma svo með okkur austur aftur, okkur langar svoo mikið að fá hana því við elskum hana svo mikið og viljum bara eiga hana he he
Ég vona líka að ég geti fengið einhverja barnapíu sem væri ti í að sitja hjá selmu 3.svar í viku svo ég fari nú að komast í þetta margblessaða íþrótta hús, þótt ég sé að sjálfsögðu alveg að fíla þetta leti líf að liggja bara uppí sófa með kók og saltstangir og ýdífu og hafa það næs !! En það er bara hreinlega ekki að virka lengur nú verður maður að drattast úr sporunum !!!
en já nóg í bili !!! endilega kvittið
BLOOOOGGGG
En já það er margt búiðað bera á daga mína síðan ég bloggaði síðast, til dæmis jólin eins og hjá öllum öðrum og þaug voru bara tussufín þetta árið, ég fékk fult af pökkum en ég reyndar sló ekki dóttir minni við þar sem hún fékk 26 pakka ! 4 mánaða skutlan ! en við fengum báðar margt fallegt !
en nú er ég komin aftur austur (í eymdina) he he en það er alveg ágætt, fór til dæmis aldrey þessu vant á djammið síðustu helgi og það var rosagaman bara.
og svo núna er bara harkan tekin við því ég er í ssmá keppni, já og ég verð að gera betur en keppinautur minn, og til þes að standa það verð ég að hætta að djamma og vera ýkt dugleg að hreyfa mig og borða holt því ekki vill ég nú að keppinautur minn sem er að standa sig fínt vinni mig
þannig að ef þið sjáið mig ferðast um bæin fótgangandi á snigils hraða, minnið mig þá á að núna sé sennilega ein stúlka á suðurnesjunum úti að skokka.. og þá gef ég í he he
En hann gylfi minn er enn á sölu og verð að fara a'ð losna við hann ! og ef þið hafið áhuga ...þá lesið bara bloggið á undan ! eða hringið einfaldlega !
en já, núna er ég að verða sibbin (eftir nákvamlega ekki neitt) og ætla að fara að skríða uppí til hennar Selmu minnar og leggja mig ... en allavena
Síjú






