iss skítur skeður ! jæja þá er loks komið að því að ég ætla að rita inn eina færslu eða svoo ! núna er ég búin að vera í grindavík í 2 mánuði og tekur sú dvöl brátt enda því að það eru bara örfáir dagar eftir hjá mér hér .! En þrátt fyrir að vera búin að vera búin að vera hér MJÖG lengi hef ég ekki gert neitt stórkostlegt af mér í þessari dvöl ! annað en að vinna /= ég fór í eitt ferðalag í sumar og fór þá á ættarmót norður á steinstaði,sem var mjög fínt .. Um versló var ég salla róleg en fór aðeins á smá skrall með honum Alla mínum, æskuvini mínum.. svo tók bara enþá meiri vinna við eftir það og fór ekki út aftur fyrr en núna um helgina þar sem dóttir mín var hjá pabba sínum að þá nýtti mér tækifærið og skellti mér á djamm,var að hugsa um að vera í sangerði og djamma með svövu og Eybbu en þegar ég var komin á svæðið þá hlakkaði þeim svo til að fara uppí sófa undir sæng eftir skemmtiatriðin! ef skemmtiatriði má kallast ! ó guð, ég fór þarna með með þeim á bryggjuna þar sem var búið að henda upp sviði og átti semsagt að manna sviðið með skemmtikröftum af ýmsum toga en guð minn allmáttugur og allt hans pakk hvað þetta var sorglegt ! það kom þarna upp Uppistandari sem var svo ægilega glataður að ég sá ekki einn einasta mann brosa þegar hann var að tala ! mér voru boðnar 50.000 kr fyrir að henda kókflöskunni minni í hann,en eftir langa umhugsun ákvað ég að það yrði sóun á kókinu ! veit ekki hvað fólk í þessari "skemmtnefnd" var að hugsa en þeir hefðu nú frekar átt að hringja í eybbu og biðja hana að stíga á stokk og kanski bara lýsa þessari ofsaflughræðslu sinni eða eikkeri annari hræðslu sinni þá hefði lýðurinn legið af hlátri ! en ég´vill engum svo illt að hlusta á hinn uppistandarann !
En já eftir að hafa látið þenna uppistandara draga úr mér allt djammstuð ákvað ég bara að koma mér í grindó.. og byrjaði að djamma þar bara .. fór út með Grétu og Auði en Auður var að keyra okkur bara .. ég hamraði vel á því við hana Grétu að hún mætti ekki stinga mig af því ég þekkti engan annan þarna, og svo eftir að hafa verið ca 30 mínótur stakk ég hana af he he já ég fór í KEFLAVÍK með gömlum vini mínum og einhverjum félaga hans og kom ekki aftur heim fyrr en hálf sjö um morgunin ..annað eins úthald hef ég sjaldan vitað !!
en já nóg komið í bili .. það er skylda að commenta .!