Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

jæja grindvíkingur !

27. ágúst 2007 klukkan 23:05

iss skítur skeður ! jæja þá er loks komið að því að ég ætla að rita inn eina færslu eða svoo ! núna er ég búin að vera í grindavík í 2 mánuði og tekur sú dvöl brátt enda því að það eru bara örfáir dagar eftir hjá mér hér .Hlæjandi!
En þrátt fyrir að vera búin að vera búin að vera hér MJÖG lengi hef ég ekki gert neitt stórkostlegt af mér í þessari dvöl ! annað en að vinna /= ég fór í eitt ferðalag í sumar og fór þá á ættarmót norður á steinstaði,sem var mjög fínt ..
Um versló var ég salla róleg en fór aðeins á smá skrall með honum Alla mínum, æskuvini mínum.. Ullandi
svo tók bara enþá meiri vinna við eftir það og fór ekki út aftur fyrr en núna um helgina þar sem dóttir mín var hjá pabba sínum að þá nýtti mér tækifærið og skellti mér á djamm,var að hugsa um að vera í sangerði og djamma með svövu og Eybbu en þegar ég var komin á svæðið þá hlakkaði þeim svo til að fara uppí sófa undir sæng eftir skemmtiatriðin! ef skemmtiatriði má kallast ! ó guð, ég fór þarna með með þeim á bryggjuna þar sem var búið að henda upp sviði og átti semsagt að manna sviðið með skemmtikröftum af ýmsum toga en guð minn allmáttugur og allt hans pakk
 hvað þetta var sorglegt ! það kom þarna upp Uppistandari sem var svo ægilega glataður að ég sá ekki einn einasta mann brosa þegar hann var að tala ! mér voru boðnar 50.000 kr fyrir að henda kókflöskunni minni í hann,en eftir langa umhugsun ákvað ég að það yrði sóun á kókinu ! veit ekki hvað fólk í þessari "skemmtnefnd" var að hugsa en þeir hefðu nú frekar átt að hringja í eybbu og biðja hana að stíga á stokk og kanski bara lýsa þessari ofsaflughræðslu sinni eða eikkeri annari hræðslu sinni þá hefði lýðurinn legið af hlátri ! Öskrandi  en ég´vill engum svo illt að hlusta á hinn uppistandarann !

En já eftir að hafa látið þenna uppistandara draga úr mér allt djammstuð ákvað ég bara að koma mér í grindó.. og byrjaði að djamma þar bara .. fór út með Grétu og Auði en Auður var að keyra okkur bara .. ég hamraði vel á því við hana Grétu að hún mætti ekki stinga mig af því ég þekkti engan annan þarna, og svo eftir að hafa verið ca 30 mínótur stakk ég hana af he he já ég fór í KEFLAVÍK með gömlum vini mínum og einhverjum félaga hans og kom ekki aftur heim fyrr en hálf sjö um morgunin ..annað eins úthald hef ég sjaldan vitað !! Ullandi 

en já nóg komið í bili .. það er skylda að commenta .!

Snædís... fórstu í kefló eða threesome? Keló? Er það nýja threesome orðið? Tell me allt skúbbið;)
#1
28. ágúst 2007 klukkan 12:18
 
Heiða
EINMITT!! Var nákvæmlega að hugsa það sama og íris meiri details takk!:)Hlakka þvílíkt til að fá þig heim jibbijibbi....
#2
28. ágúst 2007 klukkan 17:30
 
Edith
kvitt kvitt .. hæhæ vildi bara vera kurteis og kasta kveðju... en hvað er annars að frétta af alla danska eða er hann kanski bara búin að missa seinna nafnið?? hehe við vorum ansi góðar að stríða honum á tímabili ... keyrðum austur í hverfi og þú náðir alltaf að hræða hann klikkað mikið með drepa á bílnum og þykjast ekki geta startað honum aftur hehe enda ansi gott kvikindi þar á ferð ... an allavega kveðja frá kóngsins köben
#3
28. ágúst 2007 klukkan 18:40
 
Snædís
bwahaha VAR BARA AÐ SJÁ ÞAÐ NÚNA HVAÐ ÞIÐ VORUÐ AÐ TALAU UM HA HA HA ÞETTA Á AÐ VERA KEFLÓ !!! KEFLAVÍK ! HA HA HA DJÍSÚS
#4
28. ágúst 2007 klukkan 18:49
 
Jenný
Snædís djö líst mér vel a þig að hafa loksins bloggað!! Maður var hættur að nenna að kíkja hérna.. Svo er bara harkan sex ekkert að gefast upp hehe :)
#5
05. september 2007 klukkan 01:44

Skrifa athugasemd

Þett'er bara sona

  • Nafn: Snædís Ósk Guðjónsdóttir
  • Staður: djúpivogur
  • Atvinna: eins og er á hjúkrunar heimilinu í grindavík
  • Hjúskaparstaða: single !
  • Um mig: Ég er mjög gáfuð, og hef ALLTAF rétt fyrir mér he he
  • Annað: Ég á yndislegustu og fallegustu dóttir í heiminum !!

Nýjast á HumorPix

Funny Images, My Best Friend And Me?Then And Now Funny Images, A morning of awkwardness Funny Images, Vintage beer ad Funny Images, Smart Kid Funny Images, Keeping the Book Open Funny Images, Santa is real

Klukkan

Könnun

HVOR VINNUR KEPPNINA ?